|
Mér finnst samt tilhlýðilegt að skrifa einhvern pistil við þessi tímamót. Ég hef aldrei tengt áramótin neinni sérstakri gleði, nema síður sé. Satt að segja finnst mér þau dapurleg, fast að því þunglyndisleg. Þegar ég var lítill var alltaf matur heima og svo fórum við upp til ömmu og á miðnætti vorum við ekki úti í garði að sprengja flugelda heldur sátum inni hjá ömmu að drekka heitt súkkulaði og nutum samvista hvert við annað. Systkini mín höfðu sprengt svolítið af flugeldum áður, en ég fór alltaf beint upp eftir áramótaskaupið og hjálpaði ömmu að gera klárt: leggja á borð, þeyta rjóma og þess háttar. Svo var hægt að sprengja blessaða flugeldana, en mér fannst þægilegra að sitja við eldhúsborðið hjá ömmu og horfa út. Þegar ég komst á unglingsárin fór ég að finna fyrir þessari depurð og línan í laginu hans Lennons "and so this is christmas, and what have you done?" áttu svo vel við. Mér fannst ég engu hafa áorkað, ekkert hafa gert sem máli skipti. Samt var ég bara táningur og kröfurnar til þess að maður "gerði eitthvað" áttu ekkert sérstaklega vel við. Nú er ég eldri. Miklu eldri, og ég horfi til baka yfir árið og reyni að rifja upp hvað ég hef gert. Hvað hef ég gert sem máli skiptir? Lét ég einhverjum líða vel? Breytti ég lífi einhvers? Sennilega ekki, og reyndar hef ég lúmskan grun um að á stundum hafi ég látið fólki líða fremur illa. Ég get þó sagt það til að friða samviskuna að það var aldrei með vilja gert, miklu fremur af óvitaskap - því þó maður sé kominn á þennan aldur getur maður enn hegðað sér barnalega. Eina góðverkið sem ég man eftir að hafa framkvæmt er að ég er heimsforeldri. Það er ekki stórmál og ekkert sem ég finn fyrir. En ekki misskilja mig, ég er alls ekki að telja mig neinn skúrk. Ég er bara átakanlega mikið meðalmenni. Sennilega langar alla til þess að marka einhver spor á heiminn. Suma langar til þess að bjarga lífi, verða frægir, ríkir, verða fyrirmynd. Allt er þetta frekar auðvelt ef maður býr á Íslandi. Fyrr eða síðar mun maður verða í þeirri aðstöðu að hringja í 1-1-2 á neyðarstundu, maður þarf ekki annað en að labba að Geir Haarde og gefa honum á kjaftinn til að verða frægur og til þess að verða ríkur? Jah, mælikvarðinn á það er ansi afstæður. Við erum öll fyrirmyndir á einn eða annan hátt. Ég er til dæmis eini homminn sem sumir þekkja og er þannig fyrirmynd. Mig langar ekkert sérstaklega í neitt af þessu, þó ég myndi ekki slá hendinni á móti því að vera ríkur og auðvitað mun ég reyna að bjarga lífi komist ég í það - en vona að til þess komi ekki. Mig langar miklu frekar að láta einhverjum líða vel, vera bakhjarl þegar eitthvað bjátar á. En er ég það? Nei, sennilega ekki. Það er eitt af því sem maður þarf að vinna í ef maður vill ná markmiði sínu um að verða betri í dag en maður var í gær. Þetta hljómar ósköp barlómslega allt saman. Svo sem eins og ég vorkenni mér gríðarlega. Það er fjarri sanni. Ég hef ákveðin markmið fyrir árið sem nú er að bresta á, þetta ár sem maður sér glitta í þegar maður stendur á brún þess árs sem nú er að líða í aldanna skaut. Sum þeirra eru tölusett og mælanleg, fullt af kílóum sem eiga að svitna í burtu og fullt af peningum sem eiga að bætast inn á bankareikninga, meðaleinkunn í skóla sem á að hækka og fullt af flottum fyrirheitum fyrir vinnuna. En mörg þeirra, þessi sem mestu máli skipta, eru ekki mælanleg. Þau eru afstæð og huglæg. En þau eru mikilvægust og í þeim ætla ég fyrst og fremst að vinna. Ég ætla að marka spor. Hvernig væri nú að líta út fyrir sjálfið? Hætta að dusta úr teppi mínu yfir svalir nágrannans? Ég er ekki rétti maðurinn í að flytja einhvern fréttaannál, gleymi alltaf öllu jafnóðum - er sami plebbinn að þessu leiti og allir aðrir. Man eftir Lúkasarmálinu sem skók þjóðina, grey hundspottið sem átti að hafa verið kramið til dauða í íþróttatösku á sjálfri aðal verslunargötu höfuðstaðar norðurlands en hafði í raun bara stungið af. Vildi svo bara aldeilis ekki koma heim, urraði gelti og beit þegar átti að ná honum heim. Ég man REI málið sem sömuleiðis skók þjóðina, klauf borgarstjórn en er nú öllum gleymt og allir sáttir. Man eftir skipum sem strönduðu og fólki sem dó. Óska ríkisstjórnin mín tók til valda en eina manneskjan sem virðist vera í vinnunni þar er frú Jóhanna Sigurðardóttir. Hið minnsta heyrist ekki í fleirum nema kannski hugsanlega einum næturbloggara. Stórkostlegar hamfarir hafa orðið víða um heim, og maður þarf ekki að vera Völva Vikunnar til að vita að stærri og hræðilegri hamfarir eiga eftir að verða á næsta ári. Veður verða sífelld vályndari og þeim fjölgar sem falla í hamförum vegna veðurs ár frá ári. Svo vogar fólk sér að halda því fram að "Global Warming" sé ekki til. Ég veit að öðru leiti ekki hvað tekur við á nýju ári. Það er ljóst að verða plúsar og mínusar, vonandi fleiri plúsar en mínusar, og ég veit að það skiptist á góðu veðri og slæmu. Vonandi fleiri sólardagar en rigningardagar. Suma daga á manni eftir að líða illa og suma daga vel - en flestir dagar verða hvorki slæmir né góðir og fæstir dagar verða rigning eða sól. Veðrið er jú oftast grátt hér. Kæru lesendur, sem flestir eru vinir og ættingjar, takk fyrir árið sem nú er að líða. Megi nýtt ár færa ykkur hamingju, gleði og frið. |
| Steinunn December 31, 2007 12:31 PM PST Elsku netverji. Það er alltaf gott að eiga þig að þótt þú teljir þig "bara" hinn gullna meðalmann og ég hlakka svo sannalega til að eyða með þér stundum í frítíma okkar á næsta ári fyrst að við erum ekki lengur saman á vinnutíma. Ég óska þér gleðilegs árs og sem minnstu þunglyndi um áramótin ;) | ||
| Hannfríður December 31, 2007 06:33 PM PST Ekki man ég til þess að þu hafir látð mér líða illa. Hafi e-rn tíma svo verið þá er það vegna þess að þu sagðir sannleikann og þegar mar vill ekki horfast í augu við hann líður manni illa, en þakkar svo þeim sem benti manni á hlutina eins og þeir eru síðar. árið hefur verið viðburðaríkt, hvernig sem á það er litið. Ég er þakklát fyrir að hafa átt margar góðar stundir með þér og vonandi verða þær fleiri á nýju ári. Gleðilegt nýtt ár!! | ||
| Halldór December 31, 2007 09:27 PM PST Ég vona bara að hinir góðu hlutir sem mundu henda þig verði í miklum meirihluta , og gleðilegt nýtt ár | ||
| Jón r January 1, 2008 12:37 AM PST Flottur pistill vora að nýtt ár verði þér mjög gott | ||
| SverrirJ January 1, 2008 03:34 AM PST Þú ert bara meyr eins og við hin á þessum tímamótum. Gleðilegt ár, megi ævintýrin og hamingjan heimsækja þig :) | ||
| Aldan January 1, 2008 04:23 AM PST Þó þú hafir nú kannski ekki bókstaflega breytt lífi mínu, þá hefur nærvera þín þó gert það miklu skemmtilegra :) og það þykir mér afar vænt um. En er ekki betra að vera átakanlega mikið meðalmenni heldur en lítið? Ég veit ekki betur en að þér hafi oft tekist að láta mér líða betur þegar ég hef þurft á því að halda og þar fyrir utan ertu alltaf að koma brosi á smettið á mér.. hvort sem það er með klúru orðbragði eða öðru skemmtilegu :) Og þetta með teppadustið, þú ert nú ekki vanur því... sama hvað þú heldur. Svalirnar mínar eru allavega hreinar! Þú ert gullmoli :) Takk fyrir samverustundirnar á árinu sem er að líða, ég hlakka voða mikið til að eyða tíma með þér á því næsta, sama í hvaða formi það er. Eigðu yndislegt ár :) | ||
| Halldóra Harðar January 1, 2008 04:41 PM PST Gleðilegt nýtt ár kæri vin. MJÖG góður pistill og gæti hann sannarlega átt við mig og var ég að hugsa um að "peista" hann á mína síðu, jahhh nema taka heimsforeldrahlutverkið út. Hef ekki gert svo mikið góðverk. Ég verð alltaf döpur á þessum tíma árs og ætla að breyta heiminum á næsta ári. Þú hefur haft mikil áhrif á mitt líf frá degi 1 og munt halda áfram að hafa góð áhrif á mig svo mikið veit ég. Mér þykir mjög mikið vænt um þig. Vona að næsta ár leiki vel við þig. Halldóra | ||
| Íris January 2, 2008 10:06 AM PST Elsku Kalli. Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu. Hafðu það gott á komandi ári. | ||
| Nína January 2, 2008 01:10 PM PST Ókei, fyrst það er kominn 2. og tími meyrnunar er liðinn svona tæknilega séð, ætla ég ekki að vera væmin. Ég vildi bara óska þér gleðilegs árs og þakka þér fyrir að hafa verið styrkur bakhjarl minn í tölvuveseni líðandi árs. Vonandi veistu samt að þú ert miklu meira en sérlegur tölvugúrú í mínum augum (án þess að ég fari út í meyrari sálma)! Til hamingju með að vera orðinn foreldri alls heimsins, hvorki meira né minna og ég ætla rétt að vona að þú finnir þig ekki knúinn til að gefa Geir Haarde einn á 'ann á nýja árinu! Þú ert nú þegar þekktur fyrir mikilvægari og merkilegri hluti ef marka má af ummælum vina þinna hér:0) | ||
| Freezer January 2, 2008 10:39 PM PST Gleðilegt nýtt ár ! Ég er meðalmaður líka og því fyrr sem maður sættir sig við það, því betra. Gangi þér vel á árinu 2008 og framvegis. | ||
| Aldan January 8, 2008 12:11 PM PST Ekki hér heldur! | ||
| Ögmundur January 20, 2008 08:43 AM PST Ég var lengi að hugsa gott komment til að segja hérna, en svo einhvernveginn liðu dagarnir bara án þess að nokkuð gerðist. Ég bíð stundum lengi eftir að eitthvað meistaraverk detti uppúr mér, en vonbrigðin eru alltaf þau sömu. Ég kannast við meðalmennskuna. Ég veit ekki hvort ég sé sammála Freezer um að maður eigi að sætta sig við hana, mér finnst eiginlega að maður eigi frekar að hrista hana af sér, eða afneita henni, og brjótast til stórmenna! Kannski þetta sér árið til þess... | ||
| Leave a Comment: |