|
„Ég ætla að reyna að hafa þennan miðvikudag góðan. Ég ætla að reyna að taka þessu rólega og gera eitthvað skemmtilegt og gott fyrir mig. Það verður erfitt en ég ætla samt að reyna eins og ég get.“ En hvað þýðir þetta? Þýðir þetta nokkurn skapaðan hlut? Ef maður ætlar að baka köku og í uppskrift stendur að nota eigi eitt egg, reynir maður þá að setja eitt egg í kökuna eða setur maður hreinlega eggið út í? Ef maður reynir að setja eggið í í stað þess að setja það í - mun kakan heppnast? Í dag er góður dagur. Í dag ætla ég að hafa það gott og ég ætla að gera eitthvað gott fyrir mig. Er setningin ekki eðlilegri svona? Trúlegri? Vænlegri til árangurs? Ég held það. |
| Aldan December 20, 2007 12:00 AM PST Ég held það líka. Þetta er "leyndarmálið". Ég er sjálf búin að ákveða það að árið 2008 verði frábært í allastaði, alveg eins og ég sagði sjálfri mér að 2007 yrði ömurlegt :) Það gekk auðvitað eftir, þó það hefði átt sína góðu punkta. Þetta er alltaf bara spurning um hugarfar! | ||
| Halldóra Harðar December 20, 2007 08:03 AM PST Ég ætla að reyna að kommenta... Verður þetta komment gott og djúpt eins og pistillinn...held ekki! þar sem ég bara reyndi en gerði ekki! Kveðja HH | ||
| Hanna December 20, 2007 03:21 PM PST eins og svo eftirminnilega var sagt í þættinum sem ég var að horfa á langt fram eftir nóttu í gær.... þu ert thinker eða do-er. hins vegar varð ég dáldið lost í þesstu með eggið og kökuna. my bad. svaf bara 3 tíma í nótt. | ||
| Ögmundur December 21, 2007 03:19 PM PST Mér finnst þetta blogg vera eins og fólkið sem segir: Hættu þessu væli og hristu þetta af þér! Það fólk sem er þunglynt getur ekki gert betur, þó það vilji. Það hvernig hann skrifar bloggið lýsir því best hvernig manninum líður, skrif hans endurspegla sálarástand hans. Ef hann hefði skrifað að þetta yrði frábær dagur og að lífið sé yndislegt og hann ætli að gera allt hvað hann getur til að njóta þess... tja... þá væri hann væntanlega ekki þunglyndur, eða hvað? | ||
| Leave a Comment: |