<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30





rss feed





December 10, 2007
Ekkert að segja

Ég hef ekkert að segja. Hreint ekki neitt. En þið viljið kannski skoða myndir? Kíkið þá HINGAÐ.


Klukkan 20:00 mælti netverjinn svo.
4 á mælendaskrá  



December 4, 2007
Af íþróttafréttum

Það er ekkert sjónvarpsefni leiðinlegra en íþróttafréttir. Íþróttafréttir eru meira að segja leiðinlegri en íþróttalýsingar. Lengi vel átti ég erfitt með að átta mig á því hvað það var sem fór svo í taugarnar á mér en svo áttaði ég mig á því. Íþróttafréttamönnum er alltaf svo mikið niðri fyrir. Þeir sitja í stúdíói og tala um leik sem lauk fyrir mörgum klukkustundum milli tveggja liða í útlöndum og öskra á áhorfendur hvað gerðist, í nútíð eins og um beina útsendingu sé að ræða. Hversvegna er þetta?

"Ólafur hleypur fram, leikur á Kristján og hann SKOOOORAAAAR!" - Svona lagað kemur mér úr jafnvægi. Afhverju sagði fréttamaðurinn ekki í rólegheitum: "Í leiknum sýndi hornamaðurinn Ólafur mikil klókindi er hann lék á Kristján sem átti sér einskis ills von" og er þannig eins og alvöru fréttamaður.

Það er sem ég sæi Sigríði Hagalín öskra á áhorfendur: "og Steingrímur labbar í pontu hér í þingsalnum, það leiftrar af orðsnilldinni þegar hann kjaftar Geir í kaf - þessu átti Geir ekki von á!"

...fyrir utan náttúrulega að í íþrótta"fréttum" leyfist fólki að vera hlutdrægt. Hvernig stendur á því?

Klukkan 18:33 mælti netverjinn svo.
8 á mælendaskrá  



December 2, 2007
Trúgirni

Ef það er eitthvað sem ég trúi ekki á er það stjörnuspáin. Stjörnuspár eru afskaplega ótrúverðug fyrirbæri að mínu mati og þá sérstaklega stjörnuspár Moggans. En ég fæ samt daglega stjörnuspá á heimasíðu sem ég sæki og í dag stendur þetta:

It's time for you to step beyond any emotional drama so you can better consider what is next. Although you still might be attached to unresolved feelings, they may have to heal on their own. It's not useful to involve others in this process now. Instead, visualize a happier and healthier future. Whatever you believe in your imagination can become reality later on.

Við þessu er bara eitt að segja. Spot on.

Ég kveiki á kertum mínum

Í dag er sá sunnudagur sem telst fyrstur í aðventu. Þetta minnir mig á jólin sem nálgast nú eins og óð fluga. Ég er ekkert jólabarn og það eina sem hefur glatt mig við jólin er fríið sem þeim fylgir. Í ár er það ekkert sérstaklega mikið tilhlökkunarefni. Ég verð einn um jólin og fríið er til þess eins að horfa á leiðinlegt sjónvarpsefni.

Vá.. drama, sagði ekki stjörnuspáin að ég ætti að leggja slíkt til hliðar?

Verslunaræði

En þrátt fyrir jólafóbíu mína langar mig samt að hafa svolítið notalegt í kringum mig. Ég fór því í Blómaval/Húsasmiðjuna. Fann þar jólaskraut eitt afar fallegt á hagstæðu verði. Tók það upp og labbaði að kössunum. Sjö kassar voru opnir og við hvern og einn voru að lágmarki ellefu manns í röð. Ég skilaði mínu jólaskrauti og gekk út. Er þenslan í þjóðfélaginu eitthvað til að furða sig yfir þegar svona er umhorfs í búðum?

Aflýst

Alda hefur aflýst lokun bloggs síns og flugmaðurinn hefur aflýst því að hætta að blogga. Hvorutveggja er gleðiefni, þetta eru góðir bloggarar og ég saknaði þeirra.

Að lokum

Lesendur taka kannski eftir því að ég er að prófa nýjan bloggstíl. Punktafyrirsagnadæmið var orðið helst til þreytt. Viskum sjá hvernig til leggst.

Klukkan 15:56 mælti netverjinn svo.
6 á mælendaskrá  



November 29, 2007
Ég hef verið að auglýsa...

...á msn-inu mínu að undanförnu að á Netverjanum séu nýjar vörur daglega. Ég verð að reyna að standa við það. Ekki þar fyrir, ég hef ekki frá neinu að segja.

Vinnuhelgi á Bifröst um helgina, hlakka til. Það er yfirleitt gaman á þessum helgum. Og svo er kennarinn náttúrulega með gríðarlega þekkingu á efninu - því miður hefur það ekki alltaf verið raunin.

Meira seinna.

Klukkan 12:28 mælti netverjinn svo.
6 á mælendaskrá  



November 28, 2007
Það er aldeilis langt síðan...

...ég skildi að það er ekki mitt að ákveða hvað aðrir hugsa eða hvað öðrum finnst. En það þýðir ekki að ég megi ekki hafa skoðanir á því, sérstaklega ekki ef fólk ákveður að skrifa um þessar hugmyndir á opinberum vettvangi eða mælir fyrir þessum hugmyndum sínum á Alþingi. Tvö þingmál hafa komið að undanförnu sem hafa orðið til þess að ég verð ánægður með að búa á Íslandi. Glaður, hamingjusamur - já, hreint og beint himinlifandi.

Annað málið er sú tillaga Steinunnar Valdísar að fundið verði nýtt starfsheiti fyrir ráðherra. Gengur náttúrulega ekki, að hennar mati, að konur séu herrar. Hitt málið er fyrirspurn Kolbrúnar Halldórssonar um hvernig sú hefð hafi skapast að börn séu klædd í kyngreinandi liti (bleikt og blátt) á fæðingadeild og hvort ekki megi breyta þessu og börnin klædd í hvítt eða aðra kynhlutlausa liti.

Já, sei sei. En afhverju gera þessi mál mig svona glaðan? Jú, ætli það sé ekki vegna þess að ef þetta eru alvöru mál, eitthvað sem virkilega skiptir máli og það sem rétt er að eyða tíma í á Alþingi - já, þá erum við sannarlega í góðum málum!


oOo

Annars er frá því að segja að í dag fór ég í klippingu (eða rúningu). Þetta tók þrjár mínútur. Engin efni notuð á eftir eða neitt slíkt. 1600 krónur - þakka fyrir. Ef fólki finnst þetta ekki dýrt má nota einfalda jöfnu í excel til að reikna út tímakaup: =(1600/3)*60 fá út 32.000 krónur. Er það ekki bara ljómandi gott? 

Klukkan 12:50 mælti netverjinn svo.
8 á mælendaskrá  



November 27, 2007
Þegar menn fá...

...á annan tug kommenta þar sem þeir eru grátbeðnir um að byrja aftur að blogga finnst mér þeim ekki stætt á öðru en að hlýða. My two cents worth...

Klukkan 09:14 mælti netverjinn svo.
6 á mælendaskrá  



November 26, 2007
Það er heppilegt...

...að firefox mundi fyrir mig lykilorðið á síðuna því ekki mundi ég það og hefði því aldrei komist inn. Ástæða fyrir þessu þagnarrofi er annars einföld. Mbl.is er búið að breyta um lúkk. Hef í sjálfu sér enga skoðun á þeim breytingum (en er íhaldssamur maður þegar kemur að útliti vefsíðna) að öðru leyti en því að mér finnst táknmyndin sem er komin fyrir "blogga um frétt" heldur sérkennileg. Eða hugsa ég bara svona dónalega?



Klukkan 14:55 mælti netverjinn svo.
2 á mælendaskrá  



October 31, 2007
Að gefnu tilefni...

...er rétt að taka fram að ég keypti ekki sköfu. Bráðnun hálku og snjóleysið er því ekki mér að þakka. Ég mun þó hvorki endursenda gjafir né fjármuni sem mér hafa borist af þessum sökum.

Klukkan 09:38 mælti netverjinn svo.
3 á mælendaskrá  



October 30, 2007
Punktablogg...

...til að láta eitthvað birtast hérna.

  • Íslendingar standa sig auðsjáanlega ekki nógu vel í losun gróðurhúsalofttegunda, við viljum fleiri álver og fleiri olíuhreinsunarstöðvar til að stuðla að hlýnun lotslags. Ég hata snjó.
  • Ég á enga sköfu og nenni ekki að kaupa slíka. Veit líka að daginn sem ég kaupi hana hlýnar svo um munar og ég þarf ekki að nota hana oftar í sumar
  • Fréttavefir á íslensku eru orðnir of margir - mér endist ekki vinnudagurinn til að skoða þær allar.

Er þetta annars ekki nóg?

Update: Auðvitað á í öðrum punkti orðið að vera "Vetur" en ekki "Sumar" - Köllum þetta freudískan náttkjól.

Klukkan 10:17 mælti netverjinn svo.
6 á mælendaskrá  



October 28, 2007
Sitt lítið af hverju...

...gæti svo hæglega verið fyrirsögn þessa pistils. Fyrst ber að nefna að á föstudag og laugardag fór ég á Bifröst. Mér finnst alltaf jafn gaman að fara upp eftir, ekki endilega út af náminu sem slíku (sem stundum er skemmtilegt en líka stundum ansi þreytandi) heldur einna helst út af félagsskapnum sem er frábær - og nú er verið að skipuleggja útskriftarferð. Ég fékk ljómandi gott herbergi á Hótel Reykholti, mætti kalla það svítu en útsýnið var alls sérstakt, því eins og sést á myndinni - ef hún prentast vel - horfði ég beint út í kirkjugarð. En það var sannast sagna notalegt.



Svo fórum við flugmaðurinn til ættmóður hans hvar boðið var upp á prýðisgóða kjötsúpu. Það var svolítið sérstakt að kjamsa á lambakjötinu og horfa út um gluggann á rollurnar á túninu...

Færslan heitir víst Sitt lítið af hverju... þetta ætti að heita Sitt lítið af hvoru en ég nenni ekki að breyta því.

Klukkan 20:07 mælti netverjinn svo.
5 á mælendaskrá  

Previous Page Next Page